Fyrsti sólarhringurinn að líða og hefur allt gengið vel.
Við heimkomuna var hann með aðskilnaðarkvíða á háu stigi, elti mig hvert sem ég fór og svaf ofboðslega laust, það rjátlaði af honum þegar leið á daginn en ekkert vildi hann borða fyrren um kvölmatarleitið að hann kláraði allan skammtinn sinn. Eitt slys inni í gærkvöldi og ein tilraun til slyss yfir daginn en annars er hann búinn að gera allt úti og meira að segja er ég búinn að horfa á hann í tvígang strunsa út til þess eins að pissa, og kom hann inn í bæði skiptin jafnharðan aftur...
Fórum að sofa kl.11:45, vöknuðum kl.5:00, fórum útí garð og pissuðum (Bjartur þ.e.a.s, ekki ég ) fórum síðan aftur inní herbergi og kúrðum í 30 mínútur í viðbót eða þar til tími var kominn á blaðburð. Bjartur borðaði síðan morgunmatinn með bestu lyst, gerði stykkin sín úti í garði...
Núna er klukkan 8 og Bjartur aftur farinn að sofa, kúrir í hvolpabúrinu úti á palli sem Vigga var svo elskuleg að lána okkur... BHI
p.s. set inn nýjar myndir
Um bloggið
Gvendargeisli 120
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.