Jæja, lítið hefur verið bloggað en ég skal bæta pínu úr því...
Bjartur:
Hundanámskeiðið gengur vel... búið að fara yfir augnsamband, nei-ið, innkall, setjast og liggja... nú er bara að æfa þetta allt . Á þriðjudag kom smá babb í bátinn hjá Bjarti, hvutti át greinilega e-ð sem fór mjög svo illa í magann og orsakaði þvílíka drullu og slys um nótt hér í geislanum - verð að viðurkenna að það er margt meira spennandi en að standa í því kl. 03:00 ... tók þriðjudag og byrjun miðvikudags í þetta en svo lagaðist þetta sem betur fer. Námskeiðið í kvöld gekk rosavel, svaraði innkallinu alveg brilliant og lagðist síðan ítrekað í kvöld eftir framhaldsæfingarnar.
Útilega:
Vorum að koma úr einnar nætur útilegu á Kirkjubæjarklaustri, fórum þar með Önnu og vinkonu sem eru á landinu (Anna er skiptinemasystir hennar Stínu fyrir þá sem ekki þekkja - ein af systrum hennar í USA). Stína fór reyndar alla leið að Jökulsárlóni með þær, en ég lét mér duga að renna bara á Kirkjubæjarklaustur og bíða eftir þeim þar... frábært veður! Bjartur fílaði þetta í ræmur, hitta nokkra hunda og lék sér við þá - Skil núna þetta sem Elsa sagði með áreiti tjaldsvæðagesta í hunda - úff þetta var nú bara orðin plága á tímabili , "já þú mátt klappa" þýðir ekki að þú mátt alltaf vera hérna! - URR...
Denna dæmalausa (Ingunn María)... var á 150% orku alla ferðina... úff - hún var að láta hafa fyrir sér .
Myndir verða að koma síðar þ.s. orkubolti fjölskyldunnar er núna stödd á Helgafelli í miðnæturgöngu og myndavélin sömuleiðis.... BHI
Um bloggið
Gvendargeisli 120
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.