Fórum í útilegu og fyrir valinu varð Skagaströnd, Kantrýbær Íslands. Fínasta helgi með frændsystkinum Stínu - verst var að þessi blessaði vindur fór aldrei.
Kíkti í golf á völl þeirra kantrýmanna, klárlega langflottasti golfvöllur landsins þ.s. meðlimir eru undir 40 ! ... snyrtilegur, góðar flatir og lúmskar brautir. verst að skorið mitt var ekki eins gott og völlurinn ...
Bjarti líkaði þetta fínt, fékk að hlaupa í háu grasi og dunda sér. Svaf vel í fortjaldinu. Ekkert mál að keyra með hann í bílnum!
Halldór Bjarki keypti sér "alvöru" rafmagnasbíl fyrir ferðina og dundaði sér endalaust með hann... Systir hans gat ekki unað þessu og því er hún búin að versla 1 stk. líka .
Ingunn María var í góðum málum, fullt af leikfélögum og því var nóg að gera hjá henni alla helgina.
Um bloggið
Gvendargeisli 120
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.