dr. dýri...

Kíktum áðan í seinni Parvosprautuna, mikið gaman.  Fullt af hundum í Víðidalnum og Bjartur vildi tala og leika við þá alla!! Ekki voru þeir þó allir á þeim buxunum að leika við hann...  grútfúlar Cavalier kellingar og snælduvitlaus Labrador með reistan kamb voru ekki á þeim buxunum að leika W00t...

Kappinn stóð sig að sjálfsögðu vel, lagðist á bekkinn og át nammi meðan að þessi litla sprauta var sett í hann...   Núna sitjum við heima og horfum á Marley&Me Tounge...

Í dag eru stanslausar augnsambandsæfingar! mér er nánast hætt að finnast pulsur góðar..., hvolpanámskeið verklegt annað kvöld - það hlýtur að vera gaman.  BHI


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú - gefur Bjartur þér pulsu þegar þú er duglegur ? 

sn (IP-tala skráð) 1.7.2009 kl. 16:29

2 Smámynd: Fjölskyldan Gvendargeisla

Neibbs..  er með 4-6 bita uppí mér og verðlauna hann fyrir að horfa í augun á mér...  Læt s.s. bita detta ef hann gerir rétt...

Fjölskyldan Gvendargeisla, 2.7.2009 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband