Já sæll...

Það verður nú seint sagt um okkur að við höfum verið dugleg að blogga Wink.

Helstu atriðin:

Mótin 7.-9. ágúst gengu vel.  Halldór Bjarki stóð sig eins og hetja og það sama gerði Agnes á Siglufirði.  Agnes er síðan búin að vera í stífum æfingabúðum á skautunum og verið hreinlega búin með alla orku.  Það hefur núna komið fram í hita og veikindum...

Í vikunni kom ég síðan Stínu á óvart með því að birtast með þetta nýja og fína reiðhjól...  hún hjólaði t.d. um helgina eins og herforingi um nágrennið.

Á föstudaginn dæmdum við Óli Njáll saman leik í 3.deildinni ,ÓNI sem dómari, ég sem aðstoðardómari 1.  Jafnflott dómarapar hefur ekki sést hér áður...

Á laugardaginn gerðist ég handlangari í húsasmíði Tounge, hrærði steypu, hélt á fötum, keyrði hjólbörur, handlangaði í liðið, þreif upp eftir múrara o.s.frv.  það var ágætt, nema ég fékk harðsperrur ....

Ingunn María byrjar svo á morgun á Reynisholti - þ.e. leikskólanum hérna hinu megin við götuna - NICE!

Af Bjarti er allt gott að frétta, stækkar ógurlega og er meira og minna tannlaus Devil... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband